Verkalýðsfélag Akraness, Starfsgreinasamband Íslands og Samiðn munu funda á morgun. Á fundinum verður rædd um þá afstöðu sem Samtök atvinnulífsins eru með varðandi útlendinga sem starfa hér tímabundið og vísa Samtökin í lög nr.54/2001 í því sambandi. En í bréfi sem SA sendi Verkalýðsfélagi Akraness kemur fram að erlendir starfsmenn sem koma hingað í gegnum erlendar starfsmannaleigur og starfa hér tímabundið njóta ekki fullra kjara samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Einnig segir í bréfinu frá SA að einungis þurfi að tryggja erlendum starfsmönnum sem hingað koma til starfa tímabundið, lágmarkslaun, yfirvinnugreiðslur, orlof, lágmarksvinnutíma og hámarksvinnutíma. Um þessa afstöðu SA verður rædd um á fundinum á morgun.
