Það vakti mikla furðu hjá formanni Verkalýðsfélags Akraness þegar hann komst að því að ekki var fyrirhugað að halda opinn borgarafund hér á Akranesi fyrir einar mikilvægustu alþingiskosningar sem haldnar hafa verið hér síðustu áratugi.
Vel á fimmta þúsund kjósendur í Norðvestur kjördæmi eru búsettir á Akranesi, eða sem nemur 21% allra kjósenda kjördæmisins.
Á þeirri forsendu hversu gríðarlega mikilvægar þessar kosningar eru fyrir heimilin og fyrirtækin í þessu landi ákvað Verkalýðsfélag Akraness að standa fyrir opnum borgarafundi á sunnudaginn kemur. Fundurinn verður haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst klukkan 15:00.
Verkalýðsfélag Akraness vill fá skýr svör frá frambjóðendum flokkanna um hver úrræði þeirra séu fyrir fólkið og fyrirtækin í þessu landi en um þessar mundir blæðir íslenskum heimilum illilega vegna þess efnahagshruns sem hefur orðið í kjölfar bankahrunsins.
Fundurinn er fyrirhugaður með þeim hætti að einn frambjóðandi frá hverjum flokki fyrir sig mun sitja í pallborði og gefst frambjóðendum kostur á framsögu og í kjölfarið munu verða leyfðar fyrirspurnir úr sal. Einnig mun formaður Verkalýðsfélags Akraness mun flytja stutt ávarp í upphafi fundar.
Fundarstjóri verður Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns.
Verkalýðsfélag Akraness hvetur alla til að fjölmenna á fundinn og krefja frambjóðendur um skýr svör varðandi þeirra stefnumál og hvernig þeir hyggjast leysa vanda heimilanna og fyrirtækjanna í landinu.
