Stjórn Verkalýðsfélags Akraness samþykkti á stjórnafundi í gærkveldi að styrkja unglingastarf SÁÁ um 100.000 kr.
Rökin fyrir því að Verkalýðsfélag Akraness skuli telja sér það skylt að styðja við bakið á unglingastarfi SÁÁ blasa raunar allstaðar við. Tugir einstaklinga af okkar félagssvæði sem hafa átt um sárt að binda sökum ofneyslu áfengis eða fíkniefna hafa notið aðstoðar og hjálpar SÁÁ .
Stjórn Verklýðsfélags Akraness er stolt af því að geta lagt unglingastarfi SÁÁ lið í því góða starfi sem þar er unnið.
