Vetrarleiga orlofshúsa félagsins er nú að hefjast. Þeir bústaðir sem leigðir eru út um helgar í vetur eru í Húsafelli, Svínadal, Hraunborgum, Hlíð og Ölfusborgum.
Helgin kostar kr. 7.500 fyrir félagsmenn og er þá miðað við þrjár nætur, þ.e. frá föstudegi til mánudags, nema í Hlíð, þar þarf að skila á hádegi á sunnudegi. Tekið er við pöntunum á skrifstofu félagsins í alla bústaðina nema í Ölfusborgum. Gert er ráð fyrir að leigutakar gangi frá leigusamningi og greiði leigugjaldið í síðasta lagi þremur dögum fyrir brottför. Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, nema að Hlíð, þeir eru afhentir á bænum gegn framvísun leigusamnings.
Þeir sem óska eftir að fá bústað leigðan í Ölfusborgum panta hann hjá Afgreiðslu Ölfusborga í síma 483-4260 og fá nánari upplýsingar þar um fyrirkomulag greiðslu og afhendingu lykla. Verðið fyrir helgina þar er kr. 8.500.
