Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands mun koma saman til fundar á morgun vegna kjarasamnings SGS við ríkið. Núverandi samningur rennur út um næstu mánaðarmót.
Fundurinn verður haldinn í húskynnum ríkissáttasemjara og hefst kl 13:30.
Ófaglærðir starfsmenn hjá ríkinu bera töluverðar væntingar til komandi kjarasamninga enda hafa þeir ekki notið þess launaskriðs sem verið hefur á vinnumarkaðnum á undanförnum árum.
Krafan er skýr, það er stórhækkun á þeim launatöxtum sem gilda fyrir ófaglærða starfsmenn ríkisins. Það er einnig alveg ljóst að það efnahagsvandamál sem nú ríkir í íslensku samfélagi mun ekki auðvelda gerð nýs kjarasamnings við ríkið.
