Formaður félagsins var í viðtali á Bylgjunni í þættinum Í bítið á fimmtudag var. Til umræðu í viðtalinu var t.d komandi kjarasamningar og hvað Verkalýðsfélag Akraness telji að eigi að vera forgangskrafa í komandi kjarasamningum.
Formaður fór víða í þessu viðtali og koma m.a. fram hjá honum að það sé algert lykilatriði í næstu samningum að lagfæra lágmarkslaunin. Krafan þarf að vera sú að lágmarkstaxtar verði hækkaðir upp að þeim markaðslaunum sem almennt er verið að greiða á íslenskum vinnumarkaði.
Það kom einnig fram hjá formanninum að það sé til skammar fyrir verkalýðshreyfinguna að bjóða uppá lágmarkslaun sem duga alls ekki fyrir lágmarksframfærslu.
Hér á heimasíðunni hefur áður verið fjallað um að nú sé komið að öðrum en íslensku verkafólki að viðhalda hér stöðugleika.
Nægir að nefna í því sambandi að lágmarkslaun verkafólks hafa hækkað frá árinu 1997 til 2007 einungis um 105% á meðan þingfarakaupið hefur hækkað um 145% á sama tímabili, sem er 40% meiri hækkun.
Pétur Blöndal þingmaður sjálfstæðismanna og Atli Gíslason þingmaður Vinstri Græna voru í þessum sama þætti á fimmtudaginn var og Pétur Blöndal var m.a. spurður um þá kröfu að hækka lágmarkslaun úr 125.000 í 176.000 eins og formaður VLFA hefur lagt til.
Pétur Blöndal svaraði því til að búið væri að hækka lágmarkslaunin í tvígang og þær hækkanir hefðu verið hlutfallslega meiri en aðrir hópar hafi fengið. Það er með ólíkindum að heyra þingmanninn tala með þessum hætti. Sérstaklega í ljósi þeirra staðreynda að laun þingmanna hafa hækkað um 40% meira en lágmarkslaun verkafólks á síðustu 10 árum.
Ef verkafólk hefði fengið sömu prósentuhækkun og þingmenn á síðustu 10 árum þá væru lágmarkslaunin ekki 125.000 heldur 149.000 í dag. Síðan er rétt að nefna óréttlætið sem fólgið er í lífeyrisréttindum þingmanna samanborið við verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði og verður þeirri mismunun ekki með tárum tekið.
Pétur Blöndal nefndi einnig að ef lágmarkslaunin myndu fá umtalsverða hækkun í næstu samningum þá myndi það ganga upp allan launastigann og það gengi alls ekki að mati Péturs. Pétri Blöndal finnst það allt í lagi að hann og aðrir þingmenn fái 40% meiri kauphækkanir en þeir sem vinna á lágmarkslaunum og virðist ekki gera athugasemdir við að laun seðlabankastjóra eigi að hækka um 200.000 þúsund á mánuði.
Það virðist vera að þingmaðurinn vilji alls ekki taka þátt í því með verkalýðshreyfingunni að eyða þessum skammarlegu lágmarkslaunum sem ekki duga fyrir lágmarksframfærslu og er það með ólíkindum, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Hægt að hlusta á viðtalið við Pétur Blöndal og formann félagsins með því að smella hér
