Verkalýðsfélag Akraness hefur gert kauptilboð Í sumarbústað í Hvalfirði, en um er að ræða einn af þeim sex bústöðum sem eru beint fyrir neðan hótel Glym. Um er að ræða afar glæsilegan bústað sem byggður var árið 2010, en bústaðurinn er með tveimur svefnherbergjum sem bæði eru með aðgengi að salerni og sturtu. Bústaðurinn er með heitum potti og er með svefnaðstöðu fyrir sex manns.
Rétt er að geta þess að aðsókn félagsmanna í sumarbústaði sem Verkalýðsfélag Akraness á hefur verið mjög góð og er langt umfram eftirspurn og á þeirri forsendu ákvað stjórn orlofssjóðs VLFA að festa kaup á þessum bústað til að mæta umræddri eftirspurn félagsmanna.
Félagið nær að koma bústaðnum í útleigu frá og með 28 júlí og eru því 5 vikur sem koma til úthlutunar á þessu sumri. En hægt verður að sækja um eftirfarandi vikur til hádegis á næsta fimmtudag en þeir sem sækja um og eiga flesta orlofspunkta munu fá þær vikur sem eru í boði.
Umsóknir: sendið okkur tölvupóst á
Eftirfarandi vikur er hægt að sækja um en leigutímabilið er frá miðvikudegi til miðvikudags.
Vikurnar eru:
- 28 júlí til 4.ágúst
- 4. ágúst til 11. ágúst
- 11. ágúst til 18. ágúst
- 18. ágúst til 25. ágúst
- 25. ágúst til 1. september
Eftir að sumarúthlutun lýkur mun taka við hefðbundin vetrarúthlutun en þar gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Við minnum félagsmenn á sem hafa í hyggju að sækja um í þessum nýja valkosti sem félagið býður uppá, að frestur til að sækja um er eins og áður hefur komið fram til hádegis á fimmtudaginn 22. júlí.











