Verkalýðfélag Akraness vísaði kjaradeilunni við Fang til ríkissáttasemjara í dag. Félagið hefur ítrekað óskað eftir viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs en án árangurs. Verkalýðsfélag Akraness sendi bréf til Samtaka atvinnulífsins og gaf þeim lokafrest til að svari þeirri beiðni félagsins, um hvort og þá hvenær Samtökin gætu hafið viðræður um nýjan kjarasamning. Það verður að segjast alveg eins og er að svarið sem barst frá SA í gær hefur valdið gríðarlegum vonbrigðum. Samtök atvinnulífsins telja að í gildi sé bindandi kjarasamningur milli SA og vlf. Akraness sem nái til umræddra starfa hjá Fangi ehf. Einnig telja Samtök atvinnulífsins að ekki sé lagaskilyrði fyrir vísun félagsins til sáttasemjara. Fang ehf. var stofnað í júní 2002 tilgangur þess var að sjá um ræstingu, mötuneyti, þvott-þrif og launavinnslu. Öll þessi ofangreindu störf voru unnin af starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins. Þegar Fang var stofnað var starfsmönnum sem unnu við umrædd störf hjá Íj boðin áframhaldandi vinna hjá Fangi. Verðandi starfsmönnum Fangs var réttur ráðningasamningur og eftir þeim upplýsingum sem félagið hefur aflað sér var ekkert val um hvort starfsmenn vildu það sem í boði var eða ekki. Ef starfsmenn vildu ekki ganga að þessum ráðningarkjörum sem þarna var í boði gátu starfsmenn einfaldlega hætt þetta voru skilaboðin sem starfsmenn fengu. Nú er klárlega komið í ljós hver hinn eiginlegi tilgangur var með stofnun Fangs það var að lækka kjör starfsmanna.