Verkalýðfélag Akraness vill koma þeim skilaboðum á framfæri til sinna félagsmanna sem starfa hjá Norðuráli og lentu í rútuslysinu á dögunum að lögmaður félagsins er tilbúinn að aðstoða okkar félagsmenn, til að gæta að réttindum sínum telji menn sig hafa orðið fyrir skaða. Verkalýðsfélag Akraness skorar á sína félagsmenn að nýta sér þessa þjónustu sem er þeim félagsmönnum sem lentu í slysinu að kostnaðarlausu.
