Aðaltrúnaðarmaður Íj og formaður félagsins funduðu í dag með forsvarsmönnum Íslenska járnblendifélagsins. Til umræðu á fundinum voru bónusmál starfsmanna vegna fyrri ára. Ákveðið var að halda kynningarfund með starfsmönnum þar sem bónusmál fyrri ára verða kynnt. Fyrirkomulag fundanna verður auglýst fljótlega eða í samráði við forsvarsmenn Íj.
