Sameiginlegur aðalfundur allra deilda Verkalýðsfélags Akraness, nema sjómannadeildar, verður haldinn á Gamla Kaupfélaginu þriðjudaginn 21. febrúar kl. 18:00. Sjómannadeildin hélt sinn aðalfund þann 28. desember sl.
Á aðalfund eru boðaðir allir félagsmenn eftirtalinna deilda:
-
Almennrar deildar
-
Stóriðjudeildar
-
Opinberrar deildar
-
Iðnsveinadeildar
-
Matvæladeildar
Dagskrá aðalfundar er svohljóðandi:
-
Venjuleg aðalfundarstörf
-
Formaður gerir grein fyrir helstu málum á líðandi ári
-
Önnur mál
Að afloknum fundi verður fundargestum boðið upp á súpu og brauð. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að fjölmenna!
