Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri AkranessÍ morgun komu þeir Árni Múli Jónasson bæjarstjóri og Guðjón Steinsdórsson, verkefnisstjóri nýsköpunar og atvinnumála hjá Akraneskaupstað, í heimsókn á skrifstofu félagsins.
Það er afar ánægjulegt hversu gott samstarf er á milli Verkalýðsfélags Akraness og bæjaryfirvalda í hinum ýmsu málum og þá sérstaklega í atvinnumálum. En í þessari heimsókn var farið yfir hina ýmsu þætti er lúta að atvinnumálum og sóknartækifærum okkar í hinum ýmsu atvinnugreinum. Það liggur fyrir að töluverð uppbygging er á Grundartanga um þessar mundir og væntanlega munu skapast störf þar innan tíðar. Það er afar ánægjulegt að sjá hversu vel bæjaryfirvöld fylgjast með þróun atvinnulífsins á okkar atvinnusvæði.
Formaður telur það mikilvægt að Verkalýðsfélag Akraness sé í góðum tengslum við bæjaryfirvöld enda liggja hagsmunir félagsmanna VLFA og bæjaryfirvalda æði oft saman.
