Aðalfundur almennu deildar var haldinn í gær og var stjórn deildarinnar endurkjörin. Formaður félagsins fór yfir starfsemina hjá félaginu með sama hætti og hann hafði gert á aðalfundum hina deildanna. Þar með hafa allar deildirnar haldið sína aðalfundi eins og lög félagsins kveða á um. Engin breyting var á stjórnum deildanna nema hjá iðnsveinadeildinni þar var einn breyting Arnar Erlingsson fór út úr stjórninni og inn kom Guðni Ragnarsson.
