kvöld var haldinn aðalfundur stóriðjudeildar. Í gær var það Iðnsveinadeildin sem hélt sinn aðalfund. Einn breyting varð á stjórn Iðnsveinadeildar Arnar Þór Erlingsson hætti og í hans stað kom Guðni Ragnarsson en hann er trúnaðarmaður hjá Smellinn. Á báðum þessum aðalfundum fór formaður félagsins yfir helstu atriði í starfsemi félagsins frá síðasta ári. Einnig var mikið rædd um þá þróun sem er að eiga sér stað hjá HB Granda og þeirri fækkun á störfum sem átt hefur sér stað hjá fyrirtækinu á liðnu ári. Á morgun verður haldinn aðalfundur almennu deildar og er það síðasti aðalfundur deildanna. Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá er það í lögum félagsins að aðalfundir deildanna skulu haldnir fyrir janúarlok og eftir því fer stjórn félagsins í hvívetna
