Áhöfn Víkings AK 100 skorar á áhöfn Sólbaks EA að fara eftir gildandi samningum

Áhöfn Víkings AK 100 skorar á áhöfn Sólbaks EA að fara eftir gildandi samningum

Verkalýðsfélagi Akraness barst fax frá áhöfninni á Víkingi AK 100.  Óskaði áhöfnin eftir því að skrifstofa félagsins kæmi áskoruninni sem skipverjar voru búnir að samþykkja til fjölmiðla og áhafnar á Sólbaki EA.  Áskorunin hljóðar svona:

“Áhöfn Víkings AK 100 skorar á áhöfn Sólbaks EA að fara að gildandi samningum og hunsa sérsamninga Brims sem eru í óþökk okkar allra.  Við sjómenn verðum að standa vörð um hag okkar "

Sendist til fjölmiðla,

og áhafnar Sólbaks EA                       Áhöfnin á Víkingi Ak 100

Áhöfnin á Haraldi Böðvarsyni AK hefur einnig sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við sjómannasamtökin.

Í yfirlýsingu frá skipverjum á Haraldi Böðvarssyni AK segir að ef Sólbakssamningurinn gangi eftir þá sé ekkert annað eftir en lögleiða þrælahald.

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness er stolt af sínum sjómönnum sem styðja sjómannasamtökin  í þessari erfiðu deilu við forsvarsmenn Brims.  Takk kærlega fyrir. 

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.