Ársfundur Starfsgreinasambands Íslands verður haldinn í Reykjavík 14. - 15. október. Á fundinum verður eðlilega fjallað um málefni sem snerta verkafólk. Auk þess verður kosið um nýja forystusveit í sambandinu þar sem núverandi formaður, Halldór Björnsson gefur ekki kost á sér áfram. Kristján Gunnarsson, Björn Snæbjörnsson og Signý Jóhannesdóttir gefa kost á sér til forystu í sambandinu. Þau hafa öll verið mjög lengi áberandi í íslenskri verkalýðsbaráttu.
Fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness eru. Vilhjálmur Birgisson formaður félagsins, Auður Ásgeirsdóttir varaformaður, Guðrún Linda Helgadóttir matvæladeild, Tómas Rúnar Andrésson stóriðjudeild.
