Haldinn var fundur í stjórn félagsins í gær, hin ýmsu mál voru til afgreiðslu. Aðalmál fundarins var að ganga frá dagskrá fyrir 80 ára afmæli félagsins. En eins og flestum er kunnugt um er Verkalýðsfélag Akraness 80 ára 14. október. Stjórn félagsins ákvað að fresta að halda upp á afmælið þar sem ársfund Starfsgreinasambands Íslands ber upp á sama dag og félagið á afmæli.
Á stjórnarfundinum í gær var verið að leggja loka hönd á dagskrá afmælisins. Veislustjóri verður Gísli S Einarsson, KK mun spila nokkur lög, sýndar verða myndir úr félagslífinu með skjávarpa. Boðið verður uppá kökuhlaðborð. Afmælið verður haldið í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands. Afmælið verður auglýst nánar þegar nær dregur. Félagsmenn eru eindregið hvattir til koma og fagna 80 ára afmæli félagsins.
