Starfsgreinasamband Íslands gekk nýlega frá kjarasamningi við ríkið fh. aðildarfélaga sambandsins víða um land. Eitt af aðildarfélögum sambandsins er Verkalýðfélag Akraness.
Verði samningurinn samþykktur í atkvæðagreiðslu gildir hann frá 1. maí 2008 til 31. mars 2009. Um er að ræða skammtímasamning.
Ákveðið hefur verið að afgreiða samninginn í sameignlegri póstatkvæðagreiðslu meðal allra félagsmanna innan Starfsgreinasambandsins sem starfa eftir samningnum. Starfsgreinasambandið mun því sjá um atkvæðagreiðsluna og senda þeim sem hafa atkvæðisrétt kjörgögn á næstu dögum. Eftir að fólk hefur greitt atkvæði þarf það að koma atkvæðaseðlum í póst.
Með atkvæðaseðlinum munu fylgja góðar upplýsingar um breytingarnar sem náðust í viðræðunum við ríkið. Þeir sem vilja, geta auk þess fengið samninginn í heild sinni á Skrifstofu félagsins.
Verkalýðsfélag Akraness vill skora á félagsmenn að nýta sér atkvæðisréttinn með því að greiða atkvæði um kjarasamninginn. Því það skiptir miklu máli að menn greiði atkvæði um samninginn og sýni þannig í verki að þeim sé ekki sama um sín kjör. Að sjálfsögðu greiða menn atkvæði eftir sinni bestu samvisku.
Frekari upplýsingar er hægt að fá á Skrifstofu Verkalýðsfélagsins.
Atkvæðagreiðsla að hefjast um nýgerðan kjarasamning ríkisstarfsmanna
Atkvæðagreiðsla að hefjast um nýgerðan kjarasamning ríkisstarfsmanna
