Stóriðjan tryggir nokkuð gott atvinnuástand á AkranesiSamkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hér á Akranesi þá eru 61 á atvinnuleysinsskrá. Það eru 18 karlar án atvinnu og 42 konur sem gerir um 1% atvinnuleysi.
Það hafa ekki verið neinar stórar uppsagnir á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness frá því að HB Grandi sagði upp rúmum 40 konum í landvinnslu fyrirtækisins síðastliðinn vetur. Atvinnuástandið á félagssvæði VLFA er nokkuð gott þessa stundina þó vissulega séu blikur á lofti og þá sérstaklega í byggingargeiranum.
Vissulega er aldrei gott þegar fólk hefur ekki atvinnu en það sem bjargar okkur skagamönnum er sú mikla uppbygging sem orðið hefur á Grundartangasvæðinu á undanförnum árum. Formaður félagsins vill ekki hugsa þá hugsun til enda ef atvinnumöguleikarnir á stóriðjusvæðinu á Grundartanga væru ekki til staðar. Sérstaklega í ljósi þess mikla niðurskurðar sem orðið hefur í vinnslu og veiðum hér á Akranesi á undanförnum árum.
