Ekki var hægt að leigja út sumarhús félagsins í Ölfusborgum um síðustu helgi eins og til stóð vegna afleiðinga jarðskjálftans sem reið yfir á fimmtudaginn sl. Það liggur fyrir að töluverðar skemmdir hafa orðið á innbúinu, leirtau er meira og minna brotið sem og aðrar skemmdir. Í sumum bústöðum er ekki komið vatn á ennþá og þessa stundina er ekki víst hvort hægt verður að leigja út bústaðinn um næstu helgi sökum áðurnefndra skemmda.
Nefnd á vegum sumarhúsaeigenda í Ölfusborgum kom saman til fundar í morgun til að ákveða næstu skref en verið er að velta því fyrir sér hvort fenginn verði verktaki til að sjá um að laga þær skemmdir sem orðið hafa á húsum í orlofsbyggðinni.
Félagið á einnig sumarbústað í Hraunborgum í Grímsnesi og hafa forsvarsmenn félagsins kannað þann bústað og liggur fyrir að ekki urðu neinar skemmdir þar þó svo hann sé töluvert nálægt upptökum skjálftans.
