Kynningarfundir vegna viðauka sem gerður var við kjarasamning Íslenska járnblendifélagsins var haldinn í dag á skrifstofu félagsins. Það voru A og B vaktirnar sem komu og hlýddu á kynninguna í dag. Vel var mætt af hálfu starfsmanna og gekk kynningin mjög vel fyrir sig. Starfsmenn kusu um samning eftir að kynningunni lauk. Næsta kynning verður með dagmönnum á morgun og hefst hún kl 20:00 annað kvöld.
