Samningsaðilar voru sammála um að fresta kjaraviðræðum vegna kjarasamnings Norðuráls fram yfir páska. Eru samningsaðilar að fara yfir stöðuna sitt í hvoru lagi, því ljóst er að alverulega ber á milli samningsaðila. Væntingar starfsmanna til nýs kjarasamnings eru eðlilega miklar. Skilaboðin sem samninganefndin hefur fengið á undanförnum dögum og vikum eru alveg hvell skýr það er jöfnun á við sambærilegar verksmiðjur annað kemur ekki til greina segja starfsmenn og undir það tekur Verkalýðsfélag Akraness .
