Félagsmönnum í Verkalýðsfélagi Akraness fjölgaði um 190 á síðasta ári. Félagsmenn voru alls árið 2003 1.617. Árið 2004 voru félagsmenn orðnir alls 1.807. Stjórn Verkalýðsfélags Akraness er afar ánægð með þá fjölgun sem í félaginu hefur orðið á þessu eina starfsári sem liðið er frá því hún tók við stjórn félagsins. Greinilegt er að Verkalýðsfélag Akraness er á hraðri uppleið og á eftir að verða enn sterkara afl heldur en það er nú þegar orðið.
