Hagfræðingur ASí ásamt nokkrum aðilum úr samninganefnd Norðuráls hittu forsvarsmenn fyrirtækisins í dag hjá ríkissáttasemjara. Markmiðið með þessari vinnu í dag var að kanna hver launamunurinn sé á milli Norðuráls sambærilegrar verksmiðju á okkar starfssvæði. Þessi vinna var líka gerð til að samningsaðilar gætu báðir verið sammála með niðurstöðuna. Þessari samanburða vinnu lauk í dag og verður niðurstaðan væntanlega kynnt fyrir allri samninganefnd stéttarfélaganna fyrir fundinn sem er fyrirhugaður með forsvarsmönnum Norðuráls á morgun. Ljóst er á öllu að viðræðurnar eru á afar viðkvæmu stigi þessa stundina.
