Samningafundur með forsvarsmönnum Norðuráls var haldinn í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. Samningsaðilar voru sammála um að vísa þessum viðræðum í vissan farveg sem hugsanlega getur leitt til lausnar á þessum kjaraviðræðum. Ætlar hluti samninganefndarinnar að fara í vissa undirbúningsvinnu á morgun. Í þeirri vinnu mun væntanlega skýrast hvort samningsaðilar séu að gefa sér sömu forsendur til lausar á þessum viðræðum. Ef svo sé er Verkalýðsfélag Akraness sæmilega bjartsýnt að lausn finnist von bráðar í þessum kjaraviðræðum. Samt sem áður þarf afar lítið útaf að bregða til að allt sé steina stopp. Næsti fundur með forsvarsmönnum Norðuráls verður á föstudaginn og hefst fundurinn kl 13:00.
