Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru fleiri nú en nokkru sinni fyrr. Árið 2004, á fyrsta starfsári nýrrar stjórnar félagsins fjölgaði félagsmönnum um 190 og voru í lok þess árs orðnir 1.807 talsins. Í lok síðasta árs voru félagarnir orðnir 1.878 talsins og hafði þá fjölgað um 71 árið 2005.
Það sem af er þessu ári hefur félagsmönnum fjölgað um 306 og eru í dag 2.184 talsins og eru þó aðeins 8 mánuðir liðnir af árinu.
Töluverð fjölgun hefur orðið á starfsfólki hjá stórum fyrirtækjum á félagssvæði VLFA. Samkvæmt skilagreinum voru 199 félagsmenn starfandi hjá Norðuráli í júlí 2005 en þeir voru orðnir 312 í júlí 2006. Fjölgunin er upp á 113 félagsmenn.
Önnur stór fyrirtæki á svæðinu eru m.a. Íslenska Járnblendifélagið með 94 félagsmenn okkar, HB-Grandi með 126 félagsmenn og Smellinn með 59 félagsmenn.
Þessi fjölgun félagsmanna VLFA er afar ánægjuleg og sýnir svo ekki verður um villst að atvinnuástand á okkar félagssvæði er afar gott um þessar mundir. Einnig er greinilegt að félagsmenn okkar kunna vel að meta þá þjónustu sem félagið veitir þeim.
