Vetrarleiga orlofshúsa hefur farið vel af stað á skrifstofu félagsins. Forsjálir félagsmenn eru greinilega byrjaðir að skipuleggja notalegar helgarferðir í haust og hvað er þá betra en að bregða sér út úr bænum og slaka á í heitum potti á stjörnubjartri vetrarnóttu?
Fyrir þá sem kunna ekki eins vel við sveitarómantíkina er auk sumarbústaða félagsins hægt að fá leigða íbúð félagsins við Furulund á Akureyri og einnig íbúð við Laufásveg í Stykkishólmi. Hægt er að skoða myndir frá Stykkishólmi með því að smella hér.
Félagsmönnum er bent á að undir liðnum orlofshús hér vinstra megin á síðunni er hægt að skoða laus tímabil og myndir frá sumarbústöðunum eru komnar undir liðinn myndir.
