Verkalýðsfélag Akraness mun halda trúnaðarmannanámskeið um miðjan október. Námskeiðið verður auglýst nánar fljótlega og hvetur stjórn félagsins alla trúnaðarmenn félagsins til að skrá sig þegar að því kemur.
Það er markmið stjórnar félagsins að gera trúnaðarmenn eins hæfa til að gegna sínu starfi eins og kostur og er þetta námskeið einn liður í því.
