Á fimmtudaginn kemur verður haldið í hina árlegu ferð eldri félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness. Ferð þessi hefur ávallt verið vel sótt og ekki hægt að segja annað en að hennar sé af flestum félagsmönnum þessarar deildar beðið með ákveðinni eftirvæntingu. Fullbókað er nú í ferðina en lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum kl 08:30 og er ferðinni að þessu sinni heitið um Suðurlandið. Leiðsögumaður í ár er Björn Ingi Finnsen. Boðið verður upp á hádegisverð og aðrar veitingar um kaffileytið en áætluð heimkoma er á milli 18:30-19:30. Spáin fyrir Suðurlandið á fimmtudaginn er ágæt eða austlæg, breytileg átt 3-8 m/s en hætta á smáskúrum. Hiti á bilinu 9-13 stig.
Ferð eldri félagsmanna VLFA 1. september nk.
Ferð eldri félagsmanna VLFA 1. september nk.
