Á stjórnarfundi Verkalýðsfélags Akraness sem lauk rétt í þessu var samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld og Alþingi að leggja án tafar fram lagafrumvarp sem kveður á um 95% skatt á fyrirhugaðar ofurbónusa til starfsmanna eignarhaldsfélaga Kaupþings og LBI.
Stjórn VLFA minnir á að föllnu bankarnir skildu eftir sig slóð eyðileggingar þar sem m.a. upp undir 10 þúsund fjölskyldur misstu heimili sitt á nauðungaruppboði vegna þess að verðtryggðar skuldir heimilanna stökkbreyttust á nokkrum mánuðum. Þá voru einnig þúsundir launamanna sem misstu atvinnuna og kaupmáttur launa féll eins og steinn.
Að lykilstjórnendur eignarhaldsfélaga Kaupþings og LBI skuli voga sér að ætla að misbjóða siðferðiskennd landsmanna í ljósi þeirrar eyðileggingar og þjáningar sem föllnu bankarnir lögðu á almenning og heimili þessa lands er gjörsamlega óskiljanlegt.
Það er greinilegt að græðgin og spillingin er aftur að skjóta föstum rótum í fjármálakerfinu. Slík spilling og græðgi mun almenningur ekki sætta sig við!
Ályktun
Akranesi 30. ágúst 2016
"Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á Alþingi að setja lög sem kveða á um 95% skatt á fyrirhugaða milljarðabónusa sem stjórnarmenn föllnu bankanna hafa í hyggju að greiða sér út á næstunni.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness telur mikilvægt að minna á að gömlu viðskiptabankarnir þrír bera ábyrgð á og skildu eftir sig slóð eyðileggingar í íslensku samfélagi. Eyðileggingin birtist m.a. í því að kaupmáttur launafólks féll eins og steinn, verðtryggðar skuldir heimilanna stökkbreyttust á nokkrum mánuðum sem leiddi til þess að uppundir 10 þúsund fjölskyldur misstu heimili sitt á uppboð, sparnaður almennings og eldri borgara gufaði að stórumhluta upp að ógleymdu því að lífeyrir launafólks hefur verið skertur um allt að 200 milljarða vegna 500 milljarða taps lífeyrissjóðanna á glórulausum fjárfestingum í fjármálakerfinu.
Í ljósi þessarar eyðileggingar föllnu bankanna á íslensku samfélagi skorar stjórn Verkalýðsfélags Akraness á Alþingi Íslendinga að leggja nú þegar fram frumvarp að lögum sem kveður á um 95% skatt á þessa ofurbónusa sem nokkrir einstaklingar hafa í hyggju að skammta sér.
Stjórn VLFA harmar það að stjórnir föllnu bankanna ætli að misbjóða íslenskum almenningi með þessari sjálftöku sem einkennist af græðgi og spillingu. "
