Nú er farið að síga á seinni hlutann á fiskvinnslunámskeiðinu sem Verkalýðsfélag Akraness stendur fyrir. Vel á þriðja tug þátttakenda eru á námskeiðinu og koma þeir fá HB-Granda og Laugafiski. Námskeiðinu lýkur á mánudaginn og munu starfsmennirnir fá nafnbótina sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir námskeiðið, einnig hækka þeir um tvo launaflokka, og munar um minna. Að sögn þeirra leiðbeinanda sem hafa kennt á námskeiðinu hafa allir þátttakendur sýnt námskeiðinu mikinn áhuga og verið sýnum fyrirtækjum sínum til mikils sóma. Vill Verkalýðsfélag Akraness þakka leiðbeinendum og þátttakendum kærlega fyrir samveruna á liðnum tveimur vikum.
