Samninganefnd stéttarfélaganna mun hittast á morgun vegna kjaradeilu stéttarfélaganna við Íslenska járnblendifélagið, fundurinn verður haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara kl. 10:00. Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni er þolinmæði Verkalýðsfélags Akraness orðin afar takmörkuð, vegna þess hversu illa gengur að leggja lokahönd á þau atriði sem eftir standa. Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar þriðjudaginn 25. janúar. Samningafundurinn á þriðjudaginn verður að mati Verkalýðsfélags Akraness úrslitatilraun, hvort það verði gengið frá nýjum kjarasamningi við forsvarsmenn Íslenska járnblendifélagið án átaka eða ekki.
