Kynningarfundur um stóriðjuskóla Ísals var haldinn í kvöld. Til að kynna hvernig skólinn virkar hjá Ísal, voru fengnir Kolbeinn Gunnarsson formaður Vlf. Hlífar í Hafnarfirði og Gylfi Ingvarsson aðaltrúnaðarmaður Ísals. Fóru þeir félagar yfir hvernig skólinn varð til og eins hvað hann er að gefa starfsmönnum í launahækkun að loknu námi. Þegar starfsmaður hefur lokið námi fær hann 10.5% launahækkun. Ennfremur upplýstu þeir félagar að stjórnendur Ísals hefðu ákveðið að bjóða uppá framhaldsnám í stóriðjuskólanum sem mun gefa þeim sem ljúka framhaldsnáminu 4% launahækkun.
