Samningafundur var í dag um nýjan kjarasamning Íslenska járnblendifélagsins. Til umræðu voru sérmál ofngæslumanna og dagmanna. Krafa stéttarfélaganna og trúnaðarmanna er að það aukna álag sem stafar útaf fækkun starfsmanna á liðnum árum verði bætt starfsmönnum upp, með einum eða öðrum hætti. Sérkröfur eru samtals í 8 liðum hjá ofngæslumönnum en 4 hjá dagmönnum. Eru þær nú til skoðunar hjá forsvarsmönnum ÍJ. Næsti fundur er á morgun kl. 09.00 og er fundurinn haldinn hjá ríkissáttasemjara.
