Formaður félagsins hélt vinnustaðafundi með tveimur vöktum C og D uppí Norðuráli í gærkveldi. Tilgangur með þessum fundum var að heyra hljóðið í okkar félagsmönnum og kynna fyrir þeim gang viðræðna við forsvarsmenn Norðuráls. Það eru miklar væntingar sem starfsmenn Norðuráls gera til nýs kjarasamnings, á því er enginn vafi. Það var afar gagnlegt að heyra í starfsmönnunum og fá upplýsingar um hvað starfsmenn vilja leggja mestu áherslu á í komandi samningum. Það er vilji formanns félagsins að vera í eins nánu sambandi við félagsmenn sína á meðan á samningagerð stendur eins og kostur er. Næsti fundur við forsvarsmenn Norðuráls er á morgun kl 8:30
