Verkalýðsfélag Akraness er í góðu sambandi við þingmenn kjördæmisins. Í gær komu þingmenn Frjálslynda flokksins þeir Guðjón Arnar Kristjánsson og Sigurjón Þórðarson í heimsókn á skrifstofu félagsins. Menn ræddu um atvinnuhorfur og margt fleira. Fyrir tveimur mánuðum kom Jóhann Ársælsson frá Samfylkingunni í heimsókn þar sem hann var að kynna sér starfsemi félagsins. Það er afar ánægjulegt hve mikinn áhuga þingmenn sýna félaginu og því starfi sem við erum að vinna.
