Samninganefnd Sjómannasambands Íslands fundaði þriðjudaginn 30. mars í Reykjavík. Á fundinum var farið yfir stöðu mála í viðræðum sambandsins við LÍÚ. Hjörtur Júlíusson formaður Sjómannadeildar sat fundinn fyrir hönd félagsins. Formaður Sjómannadeildar sagði lítið sem ekkert hafi þokast í samkomulagsátt, en menn væru samt sem áður að ræðast við. Hjörtur sagði að margir væru því miður orðnir nokkuð svartsýnir á framhaldið.

