Fundur var haldinn með starfsmönnum síldarverksmiðjunnar, á skrifstofu félagsins á s.l þriðjudag Var þetta afar góður fundur, en nokkur gömul ágreiningsmál sem lúta að túlkun á kjarasamningi voru til umræðu. Reynt verður eftir fremsta megni að leysa þessi mál eins fljótt og verða má. Til umræðu var líka sérkjarasamningur starfsmanna en hann rennur út 30. apríl.

