Samningafundur var haldinn í morgun vegna kjarasamnings Norðuráls, fundurinn hófst kl 9:00. Forsvarsmenn Norðuráls lögðu fram tilboð um nýjan kjarasamning á fundinum í morgun. Stéttarfélögin eru þessa stundina að kostnaðarmeta þetta nýja tilboð sem forsvarsmenn Norðuráls lögðu fram. Það liggur samt fyrir að þetta tilboð er að mati Verkalýðsfélags Akraness langt frá því að vera ásættanlegt. Krafan frá starfsmönnum er hvell skýr eins og ítrekað hefur komið fram hér á heimasíðunni. Krafan byggist á því að jafna launamuninn á við aðrar sambærilegar verksmiðjur, annað er ekkert sanngirni. Verkalýðsfélag Akraness mun hvergi hvika frá þeirri kröfu starfsmanna. Samninganefnd stéttarfélaganna mun funda sameiginlega í fyrramálið og fara yfir stöðuna. Einnig hefur verið ákveðið að funda aftur með forsvarsmönnum Norðuráls á föstudaginn þar sem stéttarfélögin munu væntanlega svara tilboði fyrirtækisins.
