Samningafundur verður á morgun kl 11:00 vegna kjarasamnings Norðuráls. Samninganefnd stéttarfélaganna fundaði í morgun og fór yfir stöðuna og lagði línurnar fyrir fundinn með forsvarsmönnum Norðuráls. Verkalýðsfélag Akraness veit hvað starfsmenn vilja bæði hvað lítur að vaktafyrirkomulagi og einnig kröfuna um að jafna launamuninn við sambærilegar verksmiðjur. Þetta eru þær kröfur sem starfsmenn Norðuráls leggja mestu áherslu á og eftir þessum kröfum starfsmanna mun Verklýðsfélag Akraness vinna.
