Fundað verður á morgun með forsvarsmönnum Íslenska járnblendifélagsins vegna kjaradeilu stéttarfélaganna við Íj. Ljóst er að samningsaðilar eru að nálgast endalínuna óðfluga. Samt sem áður eru örfá atriði sem þarf að ganga frá áður en samningsaðilar skrifa undir nýjan kjarasamning. Eins er það mjög mikilvægt fyrir formann félagsins að vita frá starfsmönnum Íj hversu langt hans umboð nær í þeim atriðum sem eftir eru. Eftir því umboði mun formaður félagsins klárlega vinna eftir.
