Hún ætlar að verða erfið fæðingin að nýjum kjarasamningi við Íslenska járnblendifélagið. Deiluaðilar hófu viðræður í dag kl. 15:00 og lauk fundinum kl. 20:15 án þess að samningsaðilar hafi nálgast hvorn annan. Samningsaðilar eru enn með nokkur atriði sem gengur erfiðlega að ganga frá. Reiknað er með að næsti fundur verði á fimmtudaginn, en það mun væntanlega skýrast betur á morgun.
