Fyrirhugað er að funda með trúnaðarmönnum sem vinna eftir ríkissamningum nú í vikunni. Þar verður farið yfir nýgerðan kjarasamnig sem gerður var við ríkið. Ennfremur verður til umræðu hvaða hugmyndir trúnaðarmenn telja bestar við gerð nýjs stofnanasamnings við Sjúkrahús Akraness. Formaður mun funda fljótlega með framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Akraness og ræða við hann um komandi stofnanasamnings en Verkalýðsfélag Akraness bindur miklar vonir við að vel takist til við gerð nýjs stofnanasamnings.
