Kjarasamningur milli Sjómannasambands Íslands og LÍÚ rann út um síðastliðin áramót. SSÍ vísaði kjaraviðræðunum til ríkissáttasemjara þann 14. janúar síðastliðinn. Fundir hafa verið haldnir á 7 - 10 daga fresti, en ekkert hefur þokast í átt til samkomulags.
