Formaður félagsins og trúnaðarmaður starfsmanna Klafa munu funda með forsvarsmönnum fyrirtækisins á morgun. Tilefni fundarins er að fara yfir nýja bónuskerfið sem tekið var upp samhliða nýjum kjarasamningi sem undirritaður var í sumar. Það eru atriði í bónusnum sem stéttarfélagið og trúnaðarmaður Klafa vilja fara yfir með forsvarsvarsmönnum fyrirtækisins. Einnig vill stéttarfélagið ræða um síðustu úttekt á þrifabónusnum. En starfsmenn eru ekki á eitt sáttir við nokkur atriði sem leiddu til lækkunar á þrifabónusnum í síðustu úttekt, og fljótt á litið getur Verkalýðsfélag Akraness tekið undir þessa óánægju starfsmanna.
