Stóriðjudeild Verkalýðsfélags Akraness heldur fund á mánudaginn kemur um öryggismál og heilbrigðismál í stóriðjum. Einnig kemur Júlíus K. Björnsson sálfræðingur og fjallar um vaktavinnu,svefn og heilsu og áhrif óreglulegs vinnutíma á heilbrigði og lífgæði. Reynir Þorsteinsson yfirlæknir hefur tekið saman punkta um heilsufar starfsmanna sem starfa í stóriðjum á Vesturlandi, og mun Hallveig Skúladóttir hjúkrunarfræðingur fara yfir þessa samantekt frá Reyni Þorsteinssyni lækni. Fundurinn hefst kl. 20:00 og er haldinn að Kirkjubraut 40 þriðju hæð. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Verkalýðsfélag Akraness
Stóriðjudeild
FUNDUR
Stóriðjudeild Verkalýðsfélags Akraness heldur opinn fund mánudaginn 14. nóvember 2005 kl. 20:00 að Kirkjubraut 40, 3. hæð.
Dagskrá fundarins:
1. Öryggis- og heilbrigðismál í stóriðjunum. Öryggisfulltrúar frá Norðuráli, Íslenska járnblendifélaginu og Sementsverksmiðjunni gera grein fyrir öryggismálum í verksmiðjunum.
2. Fulltrúi frá Heilsugæslustöðinni á Akranesi fjallar um heilbrigðismál í verksmiðjunum.
3. Júlíus K. Björnsson sálfræðingur fjallar um vaktavinnu, svefn og heilsu – áhrif óreglulegs vinnutíma á heilbrigði og lífsgæði.
4. Önnur mál.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta – fundurinn er einnig opinn öllum starfsmönnum stóriðjanna.
