Fundað var um nýtt bónuskerfi fyrir starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins í dag. Forsvarsmenn Íj kynntu fyrir formönnum félaganna og trúnaðarmönnum Íj hugmyndir sínar að nýju bónuskerfi. Eru hugmyndir forsvarsmanna Íj að nýju bónuskerfi nú til skoðunar hjá samninganefnd Íj. Hvað varðar önnur kjaraatriði, þá er það orðið nokkuð ljóst að mikið ber á milli deiluaðila í þeim efnum.
