Verkalýðsfélag Akraness og Svæðisvinnumiðlun Vesturlands hafa hug á að hefja samstarf er lýtur að námskeiðshaldi fyrir atvinnulausa og félagsmenn VLFA. Verkalýðsfélag Akraness stendur fyrir fiskvinnslunámskeiði í janúar og hefur nú þegar boðið Svæðisvinnumiðlun Vesturlands að kanna hvort einhverjir sem nú eru atvinnulausir hafi áhuga að fara á slíkt námskeið. Það liggur fyrir að um 25 starfsmenn HB Granda og um 17 starfsmenn hjá Laugafiski ætla að fara á fiskvinnslunámskeiðið í janúar.
