Núna sitja fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness, þær Anna Signý Árnadóttir og Ragnhildur Bjarnadóttir, trúnaðarmenn á Sjúkrahúsi Akraness, á samningafundi vegna ríkissamningsins. Þessa stundina er æði margt sem bendir til þess að gengið verði frá samningi í dag en samkvæmt upplýsingum sem skrifstofan hefur fengið er sá samningur í anda þess sem gengið hefur verið frá á hinum almenna vinnumarkaði. Þess má geta að ófaglærðir starfsmenn á Sjúkrahúsi Akraness taka allir laun eftir þessum samningi.
Greint verður ítarlegar frá innihaldi samningsins þegar niðurstaða liggur fyrir.
