Talningu er nú lokið í atkvæðagreiðslu þeirra tveggja samningar sem undirritaðir voru í maí. Annars vegar er um að ræða kjarasamning vegna iðnaðarmanna (Samiðn) sem undirritaður var 5. maí sl. og hins vegar kjarasamning vegna starfa á almennum vinnumarkaði sem undirritaður var 13. maí sl.
Niðurstöður liggja fyrir og eru báðir samningar samþykktir á meðal félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness.
Iðnsveinar:
Kosningaþátttaka var 17,6%
Já sögðu 66,7%
Nei sögðu 33,3%
Almenni:
Kosningaþátttaka var 4,1%
Já sögðu 92,3%
Nei sögðu 7,7%
